Salir og ašstaša
Gamli Baukur skiptist í Skipasmíðastöðina, Gamla Bauk niðri og Bauksrisið.
Gamli Baukur
Skipasmíðastöðin
Salur sem tekur allt að 100 manns sem tónleikasalur en um 80 manns í sitjandi veislur. Skipasmíðastöðin hentar mjög vel til tónlistarflutnings og er rómuð fyrir góðan hljómburð. Fundaraðstaða er þar með ágætum en m.a. er að finna í salnum eftirtalinn búnað:
Tónlistarflutningur:
- Fohhn hljóðkerfi, 1.500w
- Behringer mixer, 24 rása
- Behringer mixer, 4 rása
- 2 stk. Shure hljóðnemar og standar
- Breytanlegt svið fyrir allt að 6 manna ballhljómsveitir
- Píanó
Fundaraðstaða/sýningaaðstaða:
- Hljóðkerfi (sjá ofan)
- Breiðtjald
- Dell skjávarpi
- Þráðlaust net
- Stafrænt sjónvarp Símans
- DVD spilari
- Ræðupúlt
Gamli Baukur niðri
Gamli Baukur niðri tekur allt að 40 manns í sæti sem veitingastaður og er í raun aðalsalur hússins og því yfirleitt ekki leigður fyrir lokuð samkvæmi eða fundi.
Bauksrisið
Bauksrisið ofan aðalsalarins tekur 20 manns við langborð í vesturstafni með skemmtilegu útsýni yfir höfnina. Í austurstafni loftsins er sófasett og að auki við langborðið eru þrjú 2ja til 3ja manna borð.
Hægt er að loka fyrir aðgengi upp í risið frá neðri hæðinni og því hentar salurinn vel fyrir smærri fundi og samkomur.
Vinsamlegast leitið upplýsinga í síma 464 2442










