Beint į leišarkerfi vefsins
Gamli Baukur - Vertshśs viš höfnina

Fréttir Gamla Bauks

16. jślķ 2011

Sail Hśsavķk aš hefjast

Í dag hefst hátíðin Sail Húsavík og hafa bátar verið að koma til Húsvíkur í nokkra daga til þess að taka þátt. Í nótt komu nokkrir í viðbót; þar af seglskútur frá Færeyjum. Ég ræddi lítillega við nokkra áhafnarmeðlimi á Slúppunni Johanna og á Dragin sem er af tegund sem nefnist ‘ketch’ á ensku. Þeir sögðu mér að ferðin frá Færeyjum til Íslands hefði tekið um 2 og hálfann dag og að veðrið hefði að mestu verið gott þó þeir hefðu viljað meiri vind í seglin. Þeir virtust ánægðir með að vera komnir til Húsavíkur og höfðu margar spurningar um svæðið, Norðursiglingu og báta Norðursiglingar. Þeir voru mjög stoltir af bátunum sínum, sögðu mér hvar þeir hefðu verið byggðir, hvenær og hversu miklum hraða þeir höfðu náð á leiðinni hingað.

 

Sail Húsavík er norræn strandmenningarhátíð. Það verður ýmislegt að gerast á Húsavík í kringum hátíðina. Listasýningar, tónleikar og fyrirlestrar eru meðal þess sem verður í boði næstu vikuna. Þetta er fyrsta hátíðin af því sem ætlað er að verða árleg hátíðarhöld sem verða haldin í mismunandi landi ár hvert. Vonandi er þetta upphafið á einhverju stóru.

 

16.07 Sail Húsavík 1

Trausti er einn af bátunum sem eru að heimsækja okkur á hátíðinni.

 

16.07 Sail Húsavík 2

Fleiri bátar til sýnist og það virðist sem að skógur hafi sprottið á toppi Garðarshólms á einni nóttu.

 

16.07 Sail Húsavík 3

Tveggja mastra slúppan Johanna frá Færeyjum.

 

16.07 Sail Húsavík 4

Drekinn á Dragin.

 

16.07 Sail Húsavík 5

Stýrið á Johanna.

 

16.07 Sail Húsavík 6

Áttavitinn.

 

16.07 Sail Húsavík 7

Örlítið nútímalegri leiðsögutæki.

 

16.07 Sail Húsavík 8

Verið að stilla upp fyrir eina af fjölmörgum listasýningum á Sail Húsavík. Þessi heitir Listasviðasulta og þar sýna nokkrir listamenn af svæðinu

 

16.07 Sail Húsavík 9

Fullt af fallegum bátum í höfninni í dag og fleiri á leiðinni.

 

Frekari upplýsingar um hátíðina er hægt að nálgast á sailhusavik.is.


Višurkenningar & vottun:

Alžjóšlegar og innlendar višurkenningar frį 1995Noršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er leyfishafi FeršamįlastofuNoršursigling er mešlimur ķ Ķslensku hvalaskošunarsamtökunum


Mynd


Fįnar

In English
  • North Sailing
  • Húsavík Original Whale Watching
  • North Sailing Schooners
  • Gamli Baukur
  • Skuld