Fréttir Gamla Bauks
28. febrśar 2011
Bistro Skuld
Um helgina var formleg opnun á litlum veitingastað í húsnæði Kaffi Skuldar.
Það eru þeir Níls Bjartur og Martin Varga (íslensk-Þýska teymið) sem standa fyrir þessu framtaki.
Um er að ræða einskonar S-Evropskan Bistro.
Á boðstólnum er létt máltíð að hætti S-Þjóðverja, um helgina var t.d pönnukaka með aspas og fleiru ásamt tómatasalati og vín hússins var Ítalskt og hægt að lesa sér til um sögu og þróun víngerðar á Ítalíu, auk þess eru hefðbundir drykkir ,Kaffi, gos, bjór og brennd vín t.d vandað Skoskt Wiskey á boðstólnum
Ætluninn er að hafa opið um helgar á Föstudags og Laugardagskvöldum frá 6 til 12.
Og hér fylgja með nokkrar myndir sem teknar voru fyrir viku en þá var for-opnun
HÞ
Nokkrir gestir á Bistro Skuld
Heimilslegt
Vertinn Nils framreyðir Ólífur, brauð og ídýfur í forrétt
Nils Bjartur Hailer og Martin Varga



















