Fréttir Gamla Bauks
21. jślķ 2010
Męrudagar hefjast!
Hinir árlegu Mærudagar hefjast núna á fimmtudaginn og eins og venjulega lítur út fyrir veðurblíðu og mikið fjölmenni! Að sjálfsögðu verður þétt dagskrá á Gamla Bauk, og frítt inn öll kvöld!
Í kvöld lýkur Sænskum dögum sem hófust á mánudag, og því mun Hera Ólafsdóttir ásamt hljómsveit flytja sænsk þjóðlög með djassbrag í Skipó. Hefst það klukkan 20:30. Barsvar verður síðan að því loknu, væntanlega í kringum 22:00.
Á fimmtudag, fyrsta dag Mærudaga, mun hljómsveitin Dætrasynir spila.
Föstudagskvöldið taka svo S.O.S., sem spiluðu einnig í fyrra við góðar undirtektir.
Á laugardag mun svo danshljómsveitin Hommar sjá til þess enginn viðstaddra láti dansgólfið framhjá sér fara.
Vonandi helst góða veðrið. Sænski fáninn uppi í tilefni af Sænskum dögum.




















