Beint á leiðarkerfi vefsins
Gamli Baukur

Fréttir á vef Gamla Bauks

23.11.2009

HJALTALÍN og gestir með frábæra tónleika á Gamla Bauk

Föstudagskvöldið sl. léku góðir gestir við hvurn sinn fingur í Skipasmíðastöðinni á Bauknum.   Snorri Helgason úr Sprengjuhöllinni hitaði upp með frumsömdu efni sem gekk ljúflega í gesti.  Þvínæst tóku við Sigríður Thorlacius & Heiðurspiltar og fluttu frábærlega eigið efni og annarra, þá aðallega lög þeirra bræðra Jóns Múla og Jónasar Árnasona.

 

Eftir hlé stigu 8 meðlimir Hjaltalín á stokk og heilluðu salinn uppúr skónum með skemmtilegri sviðsframkomu, frábærri innlifun og glæsilegum flutningi. 

Gamli Baukur þakkar þeim kærlega fyrir komuna.

 

Hjaltalín
Guðmundur Óskar Guðmundsson á bassa og Högni Egilsson á gítar

 

 

Hjaltalín
Rebekka Bryndís Björnsdóttir - fagott, Sigríður Thorlacius - söngur og Axel Haraldsson - trommur

 

 

Hjaltalín
Guðmundur Óskar Guðmundsson - bassi.  Högni Egilsson - söngur og gítar. Viktor Örn Árnason - fiðla. Hjörtur Ingvi Jóhannsson - hljómborð.



Mynd


Leturstillingar:

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur

Fánar

In English